Ég er með tryggt snjalltæki hjá ykkur og það skemmdist, hvað á ég að gera?
Fyrsta skrefið er að tilkynna tjónið inn á viss.is, þar fyllir þú út tjónaskýrslu og segir í stuttu máli hvað kom fyrir. Tjónaskýrslan lendir síðan hjá okkur um leið og þú staðfestir skýrsluna.
Áður en þú ferð með snjalltækið í viðgerð þá þarf að slökkva á "Find my iPhone" í símanum (ef þetta er iPhone), sama gildir um iPad og úrin.
Gott er að vera líka búin að taka afrit af mikilvægum myndum og gögnum á iCloud eða Google Photos.