Long Arrow Right External Link angle-right Search Send Times Loader chevron-down thumb-up thumb-down Spinner angle-left
Go to Viss

Ég er með tryggt snjalltæki hjá ykkur og það skemmdist, hvað á ég að gera?

Fyrsta skrefið er að tilkynna tjónið inn á viss.is, þar fyllir þú út tjónaskýrslu og segir í stuttu máli hvað kom fyrir. Tjónaskýrslan lendir síðan hjá okkur um leið og þú staðfestir skýrsluna.

Áður en þú ferð með snjalltækið í viðgerð þá þarf að slökkva á "Find my iPhone" í símanum (ef þetta er iPhone), sama gildir um iPad og úrin. 

Gott er að vera líka búin að taka afrit af mikilvægum myndum og gögnum á iCloud eða Google Photos.

Þegar er búið að samþykkja tjónið þá sendum við þér og viðeigandi verkstæði tjónabeiðni í tölvupósti, þá getur þú farið með tækið í viðgerð.

Móttaka Apple tækja í viðgerð er hjá Macland í Kringlunni á 2. hæð. Opið er á milli 11:00-17:00 alla virka daga.

Móttaka Samsung tækja í viðgerð er hjá Tæknivörur í Víkurhvarfi 4, 203 Kópavogi. Opið er á milli 9:00-16:00 alla virka daga.

Fyrir aðrar símtegundir er best að hafa samband við okkur í gegnum netspjallið hér í hægra horni og í síma 445-4500 á milli 11:00 - 17:00 mán-fim og 11:00-16:00 á föstudögum.

Did this answer your question?
Thanks so much for your feedback!
%s of people found this helpful.